Saumanámskeið með Ottó lýtalækni
Saumanámskeið með Ottó lýtalækni
Regular price
22.900 ISK
Regular price
Sale price
22.900 ISK
Unit price
/
per
Bráðaskólinn kynnir með stolti - saumanámskeið með Ottó Guðjónssyni lýtalækni!
Lýtalæknar hafa einstakt lag á saumaskap og mikla sérþekkingu á öramyndun eftir sár. Við erum því stolt af því að geta boðið ykkur upp á námskeið í saumaskap sem er af einum fremsta lýtalækni landsins. Námskeiðið er sett upp þannig að hver og einn nemandi stjórnar sjálfur sínum erfiðleikastigi og hentar því bæði byrjendum sem eru að sauma sín fyrstu spor, sem og þeim sem hafa reynslu af saumaskap en langar að bæta við sig þekkingu og færni.
.
Þú munt læra:
- Hvaða sár þarf að sauma og hvaða sár má ekki sauma
- Muninn á mismunandi samþráðum og hvernig við veljum hverju sinni
- Mismunandi saumspor allt frá einföldum, stökum saumum upp í flóknari sauma
- Hvernig við veljum saumspor fyrir hvert sár
- Fá tækifæri til að æfa þig undir handleiðslu
.
Innifalið í námskeiðssverði er:
- Fyrirlestur um fræðilega hlutann með glærum
- Sýnikennsla frá Ottó um bæði einföld, stök spor og flóknari kirurgiska sauma
- Allt efni til æfinga á staðnum
- Tími til að sauma undir handleiðslu Ottós
- Kaffi og konfekt í hléi
- Skírteini til staðfestingar á þátttöku (getur td komið sér vel fyrir nema þegar sótt er um starf innan heilbrigðisgeirans)
.
Fyrir hverja?
Nám er opið fyrir öllu heilbrigðisstarfsfólki og nemum í heilbrigðisgreinum óháðs og starfs og hentar að okkar matsvettvangi læknanna vel fyrir klíníska læknanema, sérnámsgrunnlækna, sérnámslækna, og hjúkrunarfræðinga á heilsugæslum, ljósmæður og ljósmóðurnema.
.
Val er um nokkrar dagsetningar, sjá fellilista.
Námskeiðsverð er kr. 22.900 á mann, 15% afsláttur fyrir nema í heilbrigðisgreinum.
Athugið styrki stéttarfélaga, kvittun kemur í tölvupósti.
Kennslan mun fara fram að Hörgatúni 2.
Takmarkaður sætafjöldi til þess að Ottó geti leiðbeint nemendum sem best - tryggðu þér þitt pláss strax.
Við hlökkum til að sjá þig!