Skip to product information
1 of 1

Bráðaskólinn

Saumanámskeið með Ottó - grunnnámskeið

Saumanámskeið með Ottó - grunnnámskeið

Regular price 24.900 ISK
Regular price Sale price 24.900 ISK
Sale Sold out
Dagsetning
Við erum sérstaklega stolt af því að geta boðið ykkur upp á námskeið í saumaskap sem kennt er af einum fremsta lýtalækni landsins.

Við vekjum athygli á því að námskeiðið er grunnnámskeið í saumaskap og hentar því þeim sem hafa aldrei lært sárasaum áður.

Þú munt læra:
- Hvaða sár þarf að sauma og hvaða sár má ekki sauma
- Muninn á mismunandi saumþráðum og hvernig við veljum hverju sinni
- Grunnspor í saumaskap og kirurgiskan hnút
- Hvernig við veljum saumspor fyrir hvert sár
- Fá tækifæri til að æfa þig undir handleiðslu Ottós

Innifalið í námskeiðsverði er:
- Fyrirlestur um fræðilega hlutann með glærum
- Sýnikennsla frá Ottó
- Allt efni til æfinga á staðnum
- Tími til að sauma undir handleiðslu Ottós og Guðrúnar Ingibjargar
- Kaffi og konfekt í hléi
- Skírteini til staðfestingar á þátttöku (getur t.d. komið sér vel fyrir nema þegar sótt er um starf innan heilbrigðisgeirans)

Fyrir hverja?
Námskeiðið er opið öllu heilbrigðisstarfsfólki og nemum í heilbrigðisgreinum sem eru að stíga sín fyrstu skref í saumaskap.

Val er um nokkrar dagsetningar, sjá fellilista.

15% afsláttur fyrir nema í heilbrigðisgreinum.
Athugið styrki stéttarfélaga, kvittun kemur í tölvupósti.

Takmarkaður sætafjöldi til þess að Ottó geti leiðbeint nemendum sem best - tryggðu þér þitt pláss strax.
Kennslan mun fara fram í Fæðingarheimili Reykjavíkur, að Hlíðarfæti 17 við Reykjavíkurflugvöll.
Við hlökkum til að sjá þig!
View full details