Bráðaskólinn
Æðaleggjanámskeið - CURATOR
Æðaleggjanámskeið - CURATOR
Couldn't load pickup availability
ATH. ÞETTA NÁMSKEIÐ ER EINGÖNGU FYRIR CURATOR. 15% nemaafsláttur er nú þegar reiknaður inn í verðið.
2 klst. færnibúðir í þessari grunnfærni sem á snertiflöt við starf okkar margra í heilbrigðisgeira. Enda er það svo að ef grunnfærnin er ekki í lagi, þá skiptir restin ekki miklu máli. Námskeiðið hentar hjúkrunarfræðingum, læknum, sjúkraliðum, kandídötum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sem vilja rifja upp taktana við æðaleggjauppsetningu, sér í lagi hentugt fyrir þau sem ekki hafa nýtt þessa kunnáttu lengi en langar að halda henni við. Við bjóðum einnig velkomna til okkar nema í heilbrigðisgreinum.
Um er að ræða 2 klukkustunda langt námskeið sem byrjar á fyrirlestri og svo dembum við okkur í verklegar æfingar undir handleiðslu.
Innifalið er:
- Fræðileg yfirferð um æðaleggi og æðaleggjaísetningu, góða staði fyrir uppsetningu, hvað ber að varast og helstu aukaverkanir
- Verklegar æfingar bæði á dúkku og hvert öðru undir persónulegri handleiðslu reyndra kennara.
- Allt efni fyrir æfingarnar.
- Kaffi og konfekt.
- Rafrænt skírteini með staðfestingu á námskeiðsþátttöku (getur t.d. komið sér vel fyrir hjúkrunarnema þegar sækja á um starf á heilbrigðisvettvangi).
Meðal þess sem við munum fara yfir eru:
- Anatómía og lega helstu æða
- Uppsetning æðaleggja skref-fyrir-skref
- Algeng vandamál við uppsetningu og lausnir við þeim
- Öryggisatriði, bæði fyrir sjúklinginn og okkur sjálf
Leiðbeinendur eru læknar og hjúkrunarfræðingar með mikla reynslu af æðaleggjauppsetningu.
Staðsetning: Bæjarlind 14-16, 2. hæð.
Takmarkað pláss er á námskeiðin til að tryggja að allir fái persónulega kennslu og góða handleiðslu við verklegar æfingar. Við mælum því með að tryggja ykkur pláss sem fyrst.
Kannið styrki hjá stéttarfélögum.
Við vekjum athygli á því að þetta námskeið er eingöngu ætlað fagfólki í heilbrigðisþjónustu og nemum í heilbrigðisgreinum. Námskeiðið veitir þekkingu en veitir ekki réttindi til æðaleggjauppsetningar í starfi, slíkt þarf ávallt að vera í samráði við yfirmenn.
Deila
