Bráðaskólinn
Hjartalínurit fyrir byrjendur
Hjartalínurit fyrir byrjendur
Couldn't load pickup availability
Hjartalínurit fyrir byrjendur
Lærðu að framkvæma, skilja og lesa EKG af öryggi - glænýtt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsmenn.
Hjartalínurit eða EKG eru eitt af mikilvægustu tólunum sem við höfum til að meta starfsemi hjartans og eru til dæmis órjúfanlegur hluti af uppvinnslu brjóstverkja - en það getur verið flókið að skilja hvernig hjartalínurit eru tekin, hvað þau eru að sýna okkur og hvernig eigi að lesa úr þeim. Hvað er það á hjartalínuritinu sem segir okkur að sjúklingurinn sé að fá hjartaáfall og þurfi að fara í kransæðaþræðingu án tafar? Hvernig sjáum við að sjúklingurinn sé í réttum takti eða gáttatifi?
Í lok þessa námskeiðs munu þátttakendur geta svarað þessum og fleiri spurningum af öryggi en námskeiðið er sniðið að þeim sem hafa engan eða lítinn grunn í að lesa EKG. Námskeiðið hentar vel hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, læknanemum og sérnámsgrunnlæknum en er að sjálfsögðu opið öllu heilbrigðisstarfsfólki.
Kennari námskeiðsins er Þórdís Edda Hjartardóttir, hjúkrunarfræðingur með diplóma og meistaragráðu í bráðahjúkrun, stundakennari við HÍ og leiðbeinandi í sérhæfðri endurlífgun. Þórdís starfar á Bráðamóttöku, þar sem hún fæst við hjartalínurit daglega.
🩺 Þú munt:
✅ Skilja hvað er að gerast í hjartanu í hverri upp- og niðursveiflu á hjartalínuritinu.
✅ Læra að taka EKG á réttan hátt
✅ Læra að greina takt á EKG með því að nota kerfisbundna aðferð sem þú getur notað á öll hjartalínurit og byggist á skrefabundinni nálgun.
✅ Læra að bera kennsl á merki um blóðþurrð í hjartanu á hjartalínuriti (hjartaáfall) - þetta eru rauðu flöggin; hjartalínurit sem þurfa að komast í hendur læknis strax og EKG tækin bera ekki alltaf kennsl á sjálf.
✅ Kynnast algengustu hjartatöktunum - allt frá eðlilegum sinus takti yfir í gáttatif, ofansleglatakt, ýmis hjartablokk o.s.frv.
💡 Þetta námskeið er fyrir:
- Alla heilbrigðisstarfsmenn
- …en hentar sérstaklega vel fyrir hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem taka EKG reglulega og vilja læra að bera kennsl á helstu atriði á ritunum.
-
…sem og læknanema og sérnámsgrunnlækna sem vilja skerpa á skilningi sínum á hjartalínuritum í öruggu umhverfi og með kerfisbundinni nálgun.
Þú þarft ekki að hafa neina fyrri reynslu af hjartalínuritum, við byrjum á grunninum og byggjum svo ofan á þekkinguna, skref fyrir skref.
🧠 Uppbygging námskeiðsins
- Námskeiðið er 2,5 klst. að lengd og samanstendur af fyrirlestri og verklegum æfingum þar sem við æfum okkur saman að lesa úr hjartalínuritum.
- Námskeiðið fer fram á íslensku.
- Allir þátttakendur fá skírteini frá Bráðaskólanum að námskeiði loknu.
📅 Námskeiðið fer fram að Bæjarlind 14-16, 2. hæð.
Eingöngu eru 15 pláss á þessu námskeiði til að við getum veitt persónulega kennslu. Við hvetjum því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
Kannið styrki hjá stéttarfélögum.
15% afsláttur fyrir nema í grunnnámi heilbrigðisgreina, sendið tölvupóst á bradaskolinn@bradaskolinn.is fyrir afsláttarkóða.
Deila
