Skyndihjálp og bráð veikindi ungbarna
Skyndihjálp og bráð veikindi ungbarna
Regular price
12.900 ISK
Regular price
Sale price
12.900 ISK
Unit price
/
per
Um er að ræða 4 klst. langt námskeið um skyndihjálp og bráð veikindi barna, kennt af fagfólki í heilbrigðisþjónustu. Á námskeiðinu er meðal annars farið yfir:
- Endurlífgun og mismunandi endurlífgunarhandtök eftir aldri barns
- Rétt viðbrögð við köfnun
- Hvað þarf að hafa í huga þegar ungbörn byrja að borða sjálf (e. baby-led weaning)
- Ofnæmi, ofnæmislost og notkun epi-penna
- Hvenær er í lagi að bíða heima með veikt barn og hvenær þarf að leita læknis fljótt
- Mikilvæg einkenni alvarlegra veikinda
- Hita og notkun hitalækkandi lyfja
- Meðhöndlun bruna og annarra sára
Allir þátttakendur fá að æfa handtökin vel á dúkkum og tími gefst fyrir spurningar og umræður.
Þátttakendur fá sent skírteini frá Bráðaskólanum að námskeiði loknu.
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar foreldrum og verðandi foreldrum, sem og öllum öðrum sem umgangast börn. Námskeiðið er sniðið að þörfum almennings.
Hvar? Námskeiðið fer fram í sal Fæðingarheimili Reykjavíkur að Hlíðarfæti 17, 102 Reykjavík.
Kennarar eru Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir, og Haukur Smári Hlynsson, svæfingahjúkrunarfræðingur og skyndihjálparleiðbeinandi.